Gestir geta spilað á sveppina með trjágrein.

Verkið gefur tilefni til að hægja á sér og hlusta. Tónarnir verða hluti af hljóðum staðarins, ásamt fuglasöng og niðnum í ánni. Gestir móta eigin hljóðverk með því að ganga á milli sveppanna og slá á þá.

Ómsveppir voru settir upp sem hluti af Maðurinn og skógurinn, verkefni Elliðaárstöðvar og Orkuveitunnar í tilefni af 70 ára afmæli skógræktar í dalnum. Terta bauð þremur hönnunarteymum að skapa innsetningar sem kanna tengsl manns og náttúru.
