Ég hannaði fótboltamark sem ögrar hefðbundnu ferhyrndu formi.

Form marksins byggir á mynstri fótboltans. Með því að færa form boltans yfir í markið verður til nýtt sjónrænt samband milli þeirra.

Verkefnið kannar hvernig óvenjulegt mark getur breytt væntingum okkar til leiksins og hvatt fólk sem spilar ekki venjulega fótbolta til að prófa. Hvernig breytist upplifunin af því að skjóta á markið eða verja það?
