Persónuvernd
Þessi vefur er verkefnasafn Friðriks Steins Friðrikssonar. Fyrirspurnir um persónuvernd má senda á fridrik@fridriksteinn.is.
Google Analytics er aðeins virkjað ef þú leyfir heimsóknamælingar. Það hjálpar mér að sjá hvaða verkefni eru skoðuð, hvaðan heimsóknir koma, áætlað land og hvaða tæki og vafrar eru notuð. Google getur einnig mælt flettingar, smelli á ytri tengla og niðurhal. Gögnin eru unnin hjá Google og kunna að vera unnin utan EES.
Analytics notar vafrakökur, meðal annars _ga, til að greina heimsóknir. Þú getur hafnað mælingum eða breytt valinu í „Heimsóknamælingar“ í fæti síðunnar. Þegar þú hafnar eftir að hafa samþykkt stöðvast frekari mælingar og Analytics-vafrakökur eru fjarlægðar úr þessum vafra. Það eyðir ekki gögnum sem hafa þegar verið send til Google.
Val þitt um mælingar er vistað í vafranum í allt að sex mánuði. Vefurinn virkar eins þótt þú hafnir mælingum.
Á síðu Ómsveppa er innfelldur Spotify-spilari. Hann tengist Spotify óháð vali þínu um Google Analytics. Spotify hefur eigin persónuverndarstefnu.