Friðrik Steinn Friðriksson
ÍS/EN
Öll verkefni
Vöruhönnun

Hugarró

Lítill garður með sandi, hrífu og líkani af Ásmundarsafni.

Hlutverk og samstarf
Hönnun hlutar: Friðrik Steinn Friðriksson.
Efni
Tré, gifs og sandur
Líkan af Ásmundarsafni í trébakka með sandi og lítilli hrífu.

Hugarró er lítill zen-garður sem færir Ásmundarsafn heim til fólks. Hann sækir innblástur í þá hugsjón Ásmundar Sveinssonar að listin eigi að vera hluti af daglegu lífi.

Í garðinum verður safnhúsið að litlu líkani sem býður upp á leik með form og rými. Hugarró veitir færi á að staldra við og finna ró frá áreiti hversdagsins.

Ásmundur Sveinsson (1893–1982) var einn af frumkvöðlum íslenskrar höggmyndalistar. Verk hans endurspegla íslenska sagnahefð, samfélag og náttúru. Mörg þeirra standa í almannarými og eru kunnugleg kennileiti í borginni.