Friðrik Steinn Friðriksson
ÍS/EN
Öll verkefni
Sýningarhönnun

Íslensk plötuumslög

Áþreifanleg hlið tónlistarinnar.

Hlutverk og samstarf
Sýningarhönnun með Hreini Bernharðssyni. Sýningarstjóri: Reynir Þór Eggertsson.
Plötuumslög á hvítum hillum og í sýningarborðum.

Sýningin fjallaði um hönnun íslenskra plötuumslaga og tengsl hennar við tónlist, tísku og tækni. Um miðja 20. öld stofnaði Tage Ammendrup hjá versluninni Drangey útgáfufyrirtækið Íslenzka tóna og lét hanna sérstaka plötumiða. Myndskreytt plötuumslög fylgdu í kjölfarið og þróuðust með nýjum straumum næstu áratugina.

Kynningartexti sýningarinnar á vegg við inngang að plötuumslögunum.

Tilkoma geisladiska á níunda áratugnum breytti möguleikum hönnuða. Streymisveitur hafa síðan breytt því hvernig við nálgumst tónlist, á sama tíma og áhugi á vínylplötum hefur aukist á ný.

Plötuumslög á hvítum hillum og í sýningarborðum.

Sýningin vakti spurningar um gildi áþreifanlegra tónlistarútgáfa. Hvernig tengjast umbúðir tónlistarupplifuninni? Hvaða áhrif hafa þær á umhverfið og hvernig tengjast þær því að tónlistarfólk fái greitt fyrir vinnu sína?

Samstarf og upplýsingar

Ljósmyndir: Vigfús Birgisson.