Börn og fjölskyldur þeirra hönnuðu og smíðuðu litla stóla fyrir bangsa. Þátttakendur þróuðu eigin hugmyndir, útfærðu þær og settu stólana saman.
Frá hugmynd að hlut

Smiðjan sótti innblástur í verk Enzo Mari og þá hugmynd hans að allir gætu smíðað sinn eigin stól. Bangsinn gaf verkefninu áþreifanlegt viðfangsefni og tilefni til að kanna form, stærð og notkun.

Smiðjan var hluti af fjölskyldudagskrá safnsins.

