Ungmennin í vinnustofunni unnu húsgagnalíkön með fagurfræði Enzo Mari og Rietveld að leiðarljósi.
Frá hugmynd að hlut

Unnið var með efni og hlutföll sem auðvelt væri að yfirfæra í húsgögn í fullri stærð. Líkönin voru þannig bæði sjálfstæðir hlutir og upphaf að áframhaldandi smíði.

Vinnustofunni lauk með sýningu sem þátttakendur skipulögðu sjálfir í safninu. Hún stóð til 17. desember 2023.

