Hægt er að stafla einingunum saman í hillur eða nota þær sem sæti með bók við höndina.

Brýr voru upphafspunkturinn: mannvirki sem tengja staði og færa fólk saman. Formið sótti innblástur í brú á Bústaðarvegi í Reykjavík. Ponte Vecchio í Flórens var önnur fyrirmynd, brú sem er jafnframt samkomustaður.

Einingarnar voru þróaðar með snúningsmótun í huga, aðferð til að móta hola plasthluti. Létt og fjölnota formið tengir saman fólk, hluti og umhverfi þeirra.

